femmestudio
Femme From Home
Femme From Home
Finnur þú ekki tíma í deginum til þess að fara á æfingu?
Þá er Femme from home góð lausn fyrir þig!
Heimaæfingaprógram þar sem unnið er með eigin líkamsþyngd í öllum æfingum til þess að bæta styrk og auka þol. Þú þarft engin tæki og tól!
Prógramið inniheldur 20-30 mínútna æfingar, 3x í viku og tekur vel á öllum helstu vöðvum líkamans:
Dagur 1: Efri líkami (hendur, axlir, bak)
Dagur 2: Neðri líkami (rass, læri, kálfar)
Dagur 3: Allur líkaminn - Brennsla (æfingin er hönnuð þannig að brennslan heldur áfram lengi vel eftir að æfingunni lýkur)
Hentar vel fyrir fólk sem vill taka stuttar en áhrifaríkar æfingar, til þess að koma sér af stað eftir pásu eða ef þú ert að taka þín fyrstu skref í átt að hreyfingu og bættum lífstíl.