Skilmálar

FEMME studio er vefverslun sem sérhæfir sig í lífstílsvörum og þjónustu sem miðar að heildrænni heilsu og vellíðan kvenna og kvár.

Kt. 260194-4109

femmestudio@femmestudio.is

Skilaréttur

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings eða annarri sönnun fyrir kaupum sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Skilyrði eru fyrir því að varan sé ónotuð, í upprunalegu ástandi, með merkjum þegar við á og í upprunalegum umbúðum. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar.  Skilafrestur byrjar að líða þegar vara er afhent skráðum viðtakanda.

Vörum sem keyptar voru á útsölu eða afslætti er ekki hægt að skila/skipta. Ef þú vilt skila/skipta vöru vinsamlegast hafðu þá samband við okkur með tölvupósti á femmestudio@femmestudio.is. Vinsamlegast athugið að vörur sem fást skipt/skilað þarf að senda á eftirfarandi heimilisfang: Efstaleiti 55, 230 Reykjanesbær.

Eftir að skil vöru hafa verið samþykkt fær kaupandi sendar upplýsingar um hvernig og hvert á að senda pakkann. Ekki er tekið við vörum sem sendar eru til baka ef ekki hefur verið beðið um að skila/skipta fyrst.

Endurgreiðsla

Vilji kaupandi ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru getur hann fengið endurgreitt.
Upphæð endurgreiðslu skal vera sú sem kemur fram á pöntunarstaðfestingu þó eru flutnings- og póstburðargjöld ekki endurgreidd. Kaupandi greiðir flutningskostnað fyrir vöru sem er skipt/skilað. FEMME studio greiðir ekki fyrir móttökugjald.

Gölluð vara

Ef svo óheppilega vill til að vara reynist gölluð á einhvern hátt, skemmd eða röng skal kaupandi hafa samband við FEMME studio innan 30 daga frá kaupum.

FEMME studio tekur inn gallaðar vörur í öllum tilvikum, en áskilur sér rétt til að hafna kvörtunum vegna vara sem ekki hafa verið meðhöndlaðar rétt. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á femmestudio@femmestudio.is, ef um gallaða vöru er að ræða, sem inniheldur pöntunarnúmer, lýsingu og mynd af galla. Sé vara gölluð er kaupanda boðin ný vara. Endursendingar- og sendingarkostnaður er þá á ábyrgð FEMME studio. Sé varan ekki til á lager verður hún endurgreidd að fullu.

Afhending 

Í kaupferlinu velur kaupandi sér afhendingarleið en sendingar eru afgreiddar allt frá 1-7 dögum eftir að greiðsla hefur borist. Viðskiptavinir geta valið um að sækja pöntun gjaldfrjálst eða valið um mismunandi sendingarleiðir sem skoða má betur undir afhendingarleiðir þegar staðfest kaup

Ánægja viðskiptavina

Við leggjum mikið upp úr ánægju viðskiptavina okkar og ef upp koma vandamál viljum við leysa þau eins fljótt og auðið er. Svo endilega hafðu samband við okkur ef það er eitthvað sem þú ert óánægð/ur með með því að senda okkur tölvupóst á femmestudio@femmestudio.is.

Höfundaréttur og vörumerki

Öll notkun á efni (s.s. myndir, lógó, texti) af vefsíðunni femmestudio.is er óheimil eða háð leyfi frá eiganda þess, sem er FEMME studio.

Persónuvernd og trúnaður 

FEMME studio heitir fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptinUpplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög um varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

FEMME studio

FEMME studio er vefverslun sem sérhæfir sig í lífstílsvörum og þjónustu sem miðar að heilsu og vellíðan kvenna og kvára.

Kt. 260194-4109

femmestudio@femmestudio.is