Collection: Möntru veggspjöld

Hönnun sem bæði eflir sjálfið og prýðir rýmið umhverfis þig á sama tíma. 

Mantra er jákvæð yfirlýsing, orð eða setning sem þú segir við sjálfa þig í uppbyggilegum tilgangi. Hún getur umbreytt hugsunum þínum og hugsanamynstri og dregið fram jákvæðar tilfinningar. Þannig virkar hún til sjálfseflingar.

Hugsunin á bak við möntru veggspjöldin er að þú getir leyft þeirri möntru sem höfðar mest til þín að hanga fallega uppi á vegg eða standa fallega á borði þar sem hún fær að breiða yfir þig sínum jákvæðu áhrifum daglega og auka vellíðan þína.

Innri líðan skiptir sköpum þegar kemur að heilsu okkar og vellíðan, því þurfum við að vera meðvituð um hvað það er sem veitir okkur m.a. gleði, ró, hugrekki og innblástur og umkringja okkur því.

Veggspjöldin eru vönduð og tímalaus og eru hönnun FEMME studio©. Prentun fer fram hjá íslenskri umhverfisvottaðri prentsmiðju á gæða pappír og eru þau afhent flöt (óupprúlluð) á umhverfisvænum pappaörkum.