
Um okkur
FEMME studio er rekið af okkur tvíburasystrum, Ósk og Thelmu, og varð til út frá sameiginlegri ástríðu okkar fyrir heildrænni heilsu og vellíðan kvenna og kvár.
Okkar markmið er að skapa vettvang þar sem konur og kvár geta fundið vörur, verkfæri og innblástur sem styðja við betri líðan – bæði andlega og líkamlega. Við viljum nýta þekkingu okkar, menntun og reynslu til að gera heilbrigðan og nærandi lífstíl einfaldari og aðgengilegri í amstri hversdagsins.
Hjá FEMME stúdíó snýst vellíðan um litlu hlutina sem við gerum fyrir okkur sjálf – að hlúa að huganum, næra líkamann, hreyfa okkur, staldra við og gefa okkur sjálfum pláss.
Hvort sem það er í gegnum sjálfsvinnu, hreyfingu, næringu eða fallegar og hagnýtar lífstílsvörur viljum við hvetja þig til að hugsa vel um þig kæra kynsystir, hlusta á þínar þarfir og gefa þér leyfi til að setja þig í fyrsta sæti.
FEMME studio – fyrir hugann, líkamann og lífið.
Um okkur
-
Thelma Guðlaug Arnarsdóttir
Thelma er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, ásamt því að vera löggildur einkaþjálfari.
-
Ósk Matthildur Arnarsdóttir
Ósk er lýðheilsufræðingur, með bachelor í næringarfræði, ásamt því að vera löggildur einkaþjálfari og markþjálfi.